Bækur Bústnu býflugunnar

Bústna býflugan hefur verið viðriðin bókagerð frá árinu 1980, þá hjá KÍM bókaútgáfu. Hún hefur starfað undir eigin merki frá 1997.


Bækurnar eru allar fáanlegar hér og hjá Háskólaprenti.

Draumsól

Útgefin: 2024

Ópíum er það vímuefni sem hvað lengst hefur verið notað af fólki, eða í að minnsta kosti 230-250.000 ár að því talið er. Það deyr fjöldi fólks undir áhrifum þess árlega, bæði í skúma­skotum og inni á stofnunum. Það er ómissandi þáttur í hernaði og á sjúkra­húsum. Saga ópíums er löng, sorg­leg, sóða­leg, galin og ömurleg. En hún hefur fleiri hliðar, sumar býsna óvæntar. Aðrar kunnug­legri.

Illgresi and­skotans

Útgefin: 2022

Illgresi andskotans fjallar um plöntuna hamp Cannabis sativa L. Þetta er ekki bók um vímuefni heldur verð­mæta nytja­plöntu. Gífurleg fjöl­hæfni einkennir hana og sem betur fer er við­horfið gagnvart henni að breytast.

Lögvíma

Útgefin: 2022

Lögvíma fjallar um löglegu vímu­efnin sem við flest notum, áfengi, tóbak, kaffi og sykur. Flestir hafa taka­markaða hug­mynd um hvað þessi efni eru í raun og hvað þau eru að gera neytendum.

FUNGA, ríki sveppa­kóngsins

Útgefin: 2021

Þessi bók átti að vera framhald á bókinni Villi­garðurinn, garð­yrkju­hand­bók letingjans sem kom út 1997 en stundum fara jafnvel bestu áætlanir veg allrar veraldar og verkið verður allt annað en lagt var upp með.

Drugs! Use or Abuse?

Útgefin: 2020

Manual for responsible recreational use of almost all drugs that humans use and should be read by young people in the company of parents or guardians. It's about harm reduction and steps that can be taken to minimise the risk of using drugs. English edition of DÓP!, published in 2012.

Hampur – Inni/úti ræktunar­leið­beiningar

Útgefin: 2020

Hér er nýja útgáfan sem komin er í lit og nokkrar endur­bætur frá upphaflegu útgáfunni sem kom út 1980. Það eru enn til nokkur eintök af þessari „cult“ bók sem mun hafa verið fyrsta bókin á íslensku um vímu­efna­fram­leiðslu.

Fárán­leiki fíkni­stríðsins

Útgefin: 2019

Fíknistríðið hefur geisað frá 1971 með gífurlegum kostnaði, bæði í fé og í manns­lífum en talið er að rúmar 40 milljónir manna liggi í valnum af völdum þess. Í bókinni er fjallað um hvers vegna því hafi verið hleypt af stokkunum og hvers vegna því sé ekki hætt og hvort það sé yfirleitt hægt eða jafnvel æskilegt.

Vísur Önnu Árnadóttur

Útgefin: 2017

Lausavísur eftir Önnu Árnadóttur frá Blönduósi. Þær voru teknar saman í tilefni 90 ára afmælis þessarar öðlings­konu og prentaðar í bók sem henni var færð á afmælinu. Þeir sem áhuga hafa á að eignast bókina geta pantað hana hér.

Fíkn, fíkni­saga & fíkni­stríð

Útgefin: 2016

Í bókinni er fjallað um fyrir­bærið fíkn. Hvað hún er og af hveju hún stafar miðað við nýjustu vitneskju. Rakin er saga vímu­efna­notkunar manna og dýra og fjallað um fíkni­stríðið. Þessi bók er ómissandi í umræðuna um vímu­efnin.

Búsó - Svipmyndir úr bús­áhalda­byltingunni

Útgefin: 2015

Ljósmyndabók með hugleiðingum.

Il viaggio a Roma e Firenze

Útgefin: 2013

For the first and only time ever I tried to make a book in Italian by courtesy of Google translate. Photobook of Rome and Florence from 2013.

Dóp! Notkun eða misnotkun?

Útgefin: 2012

Handbók um ábyrga afþreyingar­notkun nánast allra lyfja sem menn nota sem ætti að lesast af ungu fólki í félags­skap foreldra eða forráða­manna. Bókin fjallar um um skaða­minnkun og ráð­stafanir sem hægt er að gera til að lágmarka hættu á notkun fíkniefna.

Hjalladalur

Útgefin: 2008

Hjalladalur, – síðasta sumarið kom út í 100 árituðum og tölusettum eintökum 2011. Hún lýsir upplifun höfundar af stærsta umhverfis­glæp sem framinn hefur verið á Íslandi.

Villigarðurinn – Garð­yrkju­hand­bók letingjans

Útgefin: 1997

Villigarðurinn kom út 1997 og hún hefur verið ófáanleg nema frá höfundi. Hún er ókeypis á Lands­bóka­safninu og fólk getur nálgast hana þar. Þegar maður les hana í dag sést að hún hefur verið svolítið á undan tíðar­andanum.